
SVEFNRÁÐGJÖF FYRIR BÖRN
Hvað get ég gert fyrir þig?
Ég býð upp á persónulega svefnráðgjöf fyrir börn á aldrinum 0-5 ára. Við förum saman yfir svefnvenjur barnsins og hvað gæti verið að valda vandanum. Ég gef þér skýra og einfalda áætlun til að bæta svefnvenjurnar, sem henta þinni fjölskyldu.
Ef þú villt
-
samfelldari nætursvefn
-
lengri daglúra
-
auðveldari háttatíma
-
betri líðan
-
meiri frítíma á kvöldin
þá er persónuleg svefnráðgjöf eitthvað fyrir þig. Við getum hist á staðnum í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði eða þú getur bókað símtal - hvað sem hentar þér best

Ég er hér fyrir þig
Ég heiti Kristín og ég skil hvað þú ert að ganga í gegnum. Ég er hjúkrunarfræðingur með meistarapróf og sérfræðimenntun í barnahjúkrun. Ég hef hjálpað fjölskyldum síðan árið 2016 að bæta svefn barna, með mildum aðferðum að leiðarljósi og faglegri nálgun.
Ég er með öll tilskilin leyfi fyrir að reka heilbrigðisþjónustu frá Embætti Landlæknis og leyfi fyrir að starfa sem sérfræðingur og veita sérhæfða heilbrigðisþjónustu á stofunni minni í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði.
Ég starfa einnig við svefnráðgjöf á Barnaspítalanum og er kennari við hjúkrunar og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. En ég er fyrst og fremst mamma og veit af eigin reynslu hversu þung áhrif svefnleysi hefur á okkur og vil gera allt til að hjálpa þér og barninu þínu að sofa betur.

Móðir 6 mánaða barns
Ég trúa varla að svefninn hafi lagast svona mikið á stuttum tíma. Við fengum ótrúlega góð ráð, sumt vissum við áður en það er bara svo gott að fá að heyra það frá öðrum, allt sem ég var búin að vera að hugsa en vantaði hugrekki að prufa.
Sara
Hitti Kristínu á St.Jó í síðustu viku. Ótrúlega falleg og notaleg stofa og Kristín svo indæl og hlustaði á áhyggjur mínar. Ég vildi alls ekki fara í strangar breytingar og hún gaf mér mild ráð sem ég treysti mér í að nota.
Foreldrar 10 mánaða drengs
Það var gott að hitta Kristínu. Hún gaf okkur góð ráð sem við töldum fitta okkar orkumikla dreng best. Við enduðum á að tala um mikla meira en bara svefn og fengum fullt af góðum tipsum.
