top of page

Hvað stjórnar því hvenær og hversu lengi barnið mitt sefur ?

Aug 13
3 min read

Svefn er einn af grunnþörfum líkamans og er sérstaklega mikilvægur á fyrstu árum ævinnar þegar börn eru að vaxa, þroskast og læra á ótrúlegum hraða.

Við vitum enn ekki allt um hvers vegna við sofum, en rannsóknir sýna að svefn gegnir fjölmörgum mikilvægum hlutverkum. Hann tengist meðal annars starfsemi heilans, minni og námi, ónæmiskerfinu, efnaskiptum, tilfinningastjórnun og líkamlegri endurheimt.


Börn þurfa almennt meiri svefn en fullorðnir og svefnmynstur þeirra breytist mikið fyrstu æviárin. Hjá nýburum dreifist svefninn yfir allan sólarhringinn og skýr munur á degi og nóttu er ekki orðinn fullmótaður. Á fyrstu mánuðum ævinnar þroskast dægursveifla barnsins smám saman. Með tímanum færist stærri hluti svefnsins yfir á nóttina, nætursvefninn verður lengri og daglúrum fækkar.


Þessi þróun gerist þó ekki á nákvæmlega sama hraða hjá öllum börnum.


Svefn barna er einstaklingsbundinn. Sum börn þurfa meiri svefn en önnur og mikill munur getur verið á lengd og fjölda daglúra, jafnvel hjá börnum á sama aldri. Þess vegna er sjaldnast gagnlegt að bera svefn barnsins stöðugt saman við svefn systkina, vina eða annarra barna á sama aldri. Viðmiðunartölur um svefn eftir aldri geta verið gagnlegar, en þær eru viðmið en ekki uppskrift.


Einföld leið til að skilja svefn er að hugsa um tvö kerfi sem vinna saman:


Dægursveifluna – eða líkamsklukkuna


og


Svefnþrýstinginn – þörf líkamans fyrir svefn sem eykst meðan við erum vakandi.


Samspil þessara tveggja kerfa hefur mikil áhrif á það hvenær við verðum syfjuð, hversu auðvelt er að sofna og hversu vel okkur gengur að haldast sofandi.


Dægursveiflan er innri líffræðileg klukka líkamans sem fylgir um það bil 24 klukkustunda takti. Hún hefur áhrif á fjölmarga þætti í líkamanum, meðal annars:


* svefn og vöku

* líkamshita

* hormónastarfsemi

* árvekni

* matarlyst og efnaskipti.


Ljós og myrkur eru meðal mikilvægustu vísbendinganna sem hjálpa líkamsklukkunni að stilla sig af við dag og nótt. Melatónín er eitt þeirra hormóna sem tengjast dægurkerfinu. Seyting þess eykst að kvöldi þegar líkaminn undirbýr sig fyrir nóttina og minnkar aftur þegar líður að morgni. Hjá ungum börnum er þetta kerfi ekki fullþroskað við fæðingu heldur mótast það smám saman fyrstu mánuði ævinnar. Þess vegna er ekki raunhæft að gera sömu væntingar til svefnmynsturs nýbura og eldra barns.


Hitt kerfið er svefnþrýstingurinn. Svefnþrýstingur eykst eftir því sem við erum lengur vakandi. Þegar við sofum minnkar hann aftur. Ein leið til að hugsa um þetta er eins og ósýnilega „svefnþörf“ sem safnast smám saman upp yfir daginn.

Adenósín er eitt þeirra efna í heilanum sem tengist þessu homeostatíska svefnkerfi. Magn og áhrif adenósíns aukast í tengslum við langvarandi vöku og það stuðlar að aukinni syfju. Þetta er meðal annars ástæða þess að barn sem er nývaknað eftir góðan daglúr er yfirleitt ekki tilbúið að sofna aftur klukkustund síðar. Það hefur einfaldlega ekki náð að byggja upp nægilegan svefnþrýsting.


Svefnþörf er ekki nákvæmlega eins hjá öllum börnum


Hversu mikinn svefn barn þarf getur meðal annars tengst:


* aldri

* erfðum og einstaklingsbundnum líffræðilegum mun

* þroska

* heilsu

* líkamlegri virkni

* dagskipulagi

* umhverfi og áreiti

* fyrri svefni og hversu lengi barnið hefur verið vakandi.


Þess vegna er eðlilegt að tvö jafngömul börn hafi ekki nákvæmlega sama svefnmynstur. Það sem skiptir mestu máli er að horfa á barnið sjálft, heildarsvefn þess yfir sólarhringinn, líðan þess í vöku og hvernig svefninn gengur almennt.


„En barnið mitt er mjög þreytt – af hverju sofnar það þá ekki?“


Þetta er ein af þeim spurningum sem foreldrar spyrja mig oft. Mikill svefnþrýstingur er mikilvægur fyrir svefn, en hann er ekki eina breytan. Til að sofna þurfum við líka að geta færst úr virkni og árvekni yfir í rólegra ástand. Flestir fullorðnir kannast við þetta. Við getum verið dauðþreytt en samt átt erfitt með að sofna ef við erum stressuð, spennt, reið eða með hugann á fullu. Sama getur átt við um börn. Barn getur því verið mjög þreytt en samt átt erfitt með að sofna ef það er orðið mjög órólegt, mikið áreiti er í umhverfinu eða það á erfitt með að ná sér niður eftir daginn.


Þess vegna snýst góður svefn ekki eingöngu um að „þreyta barnið nóg“.


Það þarf að vera ákveðið jafnvægi á milli nægilegs svefnþrýstings, réttrar tímasetningar samkvæmt líkamsklukkunni og þess að barninu líði nægilega vel og sé nógu rólegt til að sofna.


Það er einmitt samspil þessara þátta sem gerir svefn bæði svo áhugaverðan – og stundum flókinn.


Gangi þér vel

kveðja Kristín

 
 
 

Comments


bottom of page