Stuttir daglúrar
Stuttir daglúrar – þarf ég að hafa áhyggjur ?
Margir foreldrar kannast við að barnið sofni loksins í daglúr – en vakni svo aftur eftir aðeins 30–45 mínútur. Stuttir daglúrar eru mjög algengir, sérstaklega hjá ungum börnum og þurfa ekki alltaf að þýða að eitthvað sé að.
Svefn barna skiptist í svefnlotur/svefnhringi og hjá ungum börnum eru þær oft aðeins um 40–50 mínútur. Þegar einni svefnlotu lýkur getur barnið vaknað alveg í stað þess að tengja saman næstu lotu. Hæfileikinn til að tengja svefnlotur þroskast smám saman.
Hvað getur hjálpað?
Ef barnið sefur reglulega mjög stutta lúra getur verið gagnlegt að skoða:
Vökutímann fyrir lúrinn. Bæði of stuttur og of langur vökutími getur haft áhrif á lengd lúrsins.
Svefnumhverfið. Myrkur, ró og svipaðar aðstæður frá degi til dags geta hjálpað.
Hvernig barnið sofnar. Þegar börn læra smám saman að sofna með minni aðstoð getur þeim reynst auðveldara að sofna aftur þegar þau rumska milli svefnlota.
Heildarsvefninn yfir sólarhringinn. Einn stuttur daglúr segir ekki alla söguna. Mikilvægara er að horfa á svefn barnsins í heild og hvernig því líður þegar það er vakandi.
Ef barnið vaknar eftir 30–45 mínútur glatt og úthvílt getur verið að þetta hafi einfaldlega verið sá svefn sem það þurfti. Ef það vaknar hins vegar greinilega þreytt, pirrað og nær sjaldan góðum hvíldarlúrum getur verið gagnlegt að skoða dagskipulagið nánar.
Munið að daglúrar breytast mikið á fyrsta æviárinu. Stuttir lúrar eru oft hluti af eðlilegum þroska og lengjast hjá mörgum börnum þegar svefninn þroskast og dagskipulagið verður stöðugra, sem gerist oftast í kringum 5 mánaða aldur.
Ef daglúrarnir eru að valda streitu eða þið eruð óviss um hvort dagskipulagið henti barninu ykkar, þá er hægt að fá einstaklingsmiðaða svefnráðgjöf hjá mér. Saman skoðum við svefninn í heild, aldur og þroska barnsins og finnum raunhæfar leiðir sem henta ykkar fjölskyldu.
Tímabókun hér : www.noona.is/svefnradgjof
kveðja Kristín svefnráðgjafi




Comments