Af hverju vaknar barnið mitt kl.5 á morgnana ?
Er barnið þitt farið að vakna klukkan 5 á hverjum morgni, tilbúið að byrja daginn, á meðan þig langar helst að sofa aðeins lengur? Að vakna mjög snemma er algeng áskorun hjá barnafjölskyldum og getur verið sérstaklega erfið þegar hún verður að föstu mynstri.
En af hverju vakna sum börn svona snemma og er hægt að breyta því?
Undir morgun er svefninn léttari og svefnþrýstingurinn, sem hefur byggst upp yfir daginn, er orðinn minni. Þess vegna getur verið erfiðara fyrir barnið að sofna aftur ef það vaknar undir morgun.
Ýmislegt getur haft áhrif á það hversu snemma barnið vaknar:
Barnið hefur sofið nægilega mikið. Ef barnið sofnar klukkan 19 og vaknar klukkan 5 hefur það sofið í 10 klukkustundir. Ef það sefur líka vel á daginn gæti heildarsvefninn verið í samræmi við svefnþörf þess.
Of mikill eða seinn dagsvefn. Langir daglúrar eða seinn síðasti lúr geta haft áhrif á nætursvefninn.
Of lítill svefn. Ef barnið er að sofa of lítið yfir sólarhringinn getur þreyta haft neikvæð áhrif á svefninn. Lausnin er því ekki alltaf að stytta dagsvefninn eða seinka háttatímanum.
Birta og umhverfi. Dagsbirta, hávaði eða önnur áreiti snemma morguns geta auðveldað barninu að vakna.
Svefnvenjur. Ef barnið er vant því að dagurinn hefjist klukkan 5, með ljósi, næringu eða leik, getur sá tími smám saman fest sig í sessi.
Hvað getur þú gert?
1. Skoðaðu heildarsvefn barnsins
Byrjaðu á að skoða hversu mikið barnið sefur samtals yfir sólarhringinn. Börn eru misjöfn og ekki öll börn þurfa 12 klukkustunda nætursvefn.
Til dæmis gæti eins árs barn sem sefur frá 19 til 5 og tekur tveggja klukkustunda daglúr verið að fá 12 klukkustunda heildarsvefn, sem er innan ráðlagðs svefntíma fyrir þennan aldur.
2. Athugaðu daglúrana
Ef barnið sefur lengi á daginn gæti verið gagnlegt að prófa að stytta dagsvefninn lítillega, sérstaklega ef barnið vaknar hresst mjög snemma á morgnana. Einnig er mikilvægt að síðasti daglúrinn sé ekki of nálægt háttatímanum.
Gerðu þó aðeins eina breytingu í einu og fylgstu með áhrifunum. Ekki stytta dagsvefninn ef barnið er þegar að sofa of lítið.
3. Skoðaðu háttatímann
Ef barnið sofnar mjög snemma á kvöldin og vaknar úthvílt klukkan 5 gæti verið gagnlegt að færa háttatímann smám saman aftar, til dæmis um 10–15 mínútur í senn. Hins vegar er ekki alltaf lausnin að leggja barnið seinna til svefns. Ef það er þegar orðið of þreytt getur seinni háttatími haft öfug áhrif.
4. Haltu nóttinni áfram þótt klukkan sé 5
Ef markmiðið er að barnið vakni klukkan 6 eða 7 er mikilvægt að reyna að hefja ekki daginn klukkan 5. Hafðu herbergið áfram dimmt, samskipti róleg og forðastu að kveikja ljós eða byrja að leika. Ef barnið þarf aðstoð við að róast skaltu veita því aðstoð. Markmiðið er að hjálpa barninu að skilja muninn á nóttu og degi.
5. Gefðu breytingunum tíma
Svefnvenjur breytast sjaldnast á einni nóttu. Reyndu að halda nokkuð stöðugri dagsrútínu og gefðu breytingunum tíma áður en þú metur hvort þær hafi skilað árangri.
Er klukkan 5 alltaf of snemma ?
Nei, ekki endilega. Sum börn eru morgunhressari en önnur og svefnþörfin er einstaklingsbundin. Mikilvægast er að skoða heildarmyndina. Hversu mikið sefur barnið yfir sólarhringinn? Er það úthvílt og í góðu jafnvægi yfir daginn? Eða er það orðið þreytt og pirrað strax snemma morguns? Ef barnið er úthvílt og hefur fengið nægan svefn getur þurft að vinna með tímasetningar svefnsins frekar en að reyna að auka heildarsvefninn.
Þarftu aðstoð við svefn barnsins?
Ef barnið þitt vaknar mjög snemma á hverjum morgni og þú hefur reynt ýmsar leiðir án árangurs getur verið gagnlegt að koma til mín í svefnráðgjöf.
Í svefnráðgjöf skoðum við svefn barnsins í heild sinni, dagsvefn, háttatíma, næturvaknanir og svefnvenjur, og finnum leiðir sem henta barninu og fjölskyldunni.
Bókaðu tíma í svefnráðgjöf á Svefnráðgjöf.is.
Kristín Björg Flygenring - Sérfræðingur í barnahjúkrun og svefnráðgjafi barna





Comments